Hjaltalín snýr aftur á Iceland Airwaves
Íslenska hljómsveitin Hjaltlín mun koma fram á Iceland Airwaves í nóvember næstkomandi, en hún hefur ekki komið fram á hátíðinni í fimm ár. Yfir 50 atriði bættust við dagskrá tónlistarhátíðarinnar í dag en hún fer fram dagana 6.-9. nóvember næstkomandi.
Daði Freyr, Jói P og Króli, Cell7, Krabba Mane, GKR og Pétur Ben eru meðal þeirra íslensku atriða sem kynnt voru í dag.